Notendaskilmálar korta
Skilmálar vefverslunar Skaftárhrepps v/Íþróttamiðstöðvar Skaftárhrepps
Velkomin í vefverslun Íþróttamiðstöðvar Skaftárhrepps sem er í eigu og rekstri
Skaftárhrepps kt. 480690-2069,. Klausturvegi 4, 880 Kirkjubæjarklaustri. VSK nr. 28667.
Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við Íþróttamiðstöð
Skaftárhrepps.
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að
nota vefverslun Íþróttamiðstöðvar Skaftárhrepps samþykkir þú þessa skilmála.
1. SKILGREININGAR
Eftirtalin hugtök hafa þessa merkingu þar sem þau koma fyrir í skilmálum þessum:
- Fullorðinn eru einstaklingar sem eru 18 ára og eldri.
- Skiptakort eru sundkort með inneign á ákveðinn fjölda ferða
- Tímabilskort eru kort sem gefið er út með nafni og kennitölu einstakling er aðeins
til einkanota fyrir þann einstakling.
- Sundkortin veita aðgang að sundlaug Skaftárhrepps
- Líkamsræktarkort veitir aðgang í líkamsrækt og sundlaug Skaftárhrepps.
- Kortin eru sjálfsafgreiðslukort
2. NOTENDAREGLUR
- Skiptakort:
- hægt er að kaupa sundkort/skiptakort með inneign á ákveðinn fjölda ferða.
- fleiri en einn einstaklingur getur notað skiptakort.
- Tímabilakort:
- eru kort sem gefið er út fyrir ákveðinn einstakling og er til einkanota fyrir þann
einstakling.
- skiptakort gildir ekki fyrir hópa.
- gildistími skiptakorta er 36 mánuðir frá kaupdegi.
- eru aðgreind fyrir börn, fullorðna, aldraða og aðra skilgreinda hópa.
- kortið veitir ótakmarkaðar ferðir yfir fyrirfram skilgreint tímabil.
1. GJALDSKRÁ
Skaftárhreppur gefur árlega út gjaldskrá fyrir stofnanir Skaftárhrepps. Gjaldskrá
hvers árs er aðgengileg á heimasíðu Skaftárhrepps “klaustur.is” og hangir uppi á
starfsstöðum.
2. SKILAREGLUR
Skiptakortum er ekki hægt að skipta yfir í tímabilskort. Ekki er hægt að leggja inn
sundkort tímabundið. Ekki er boðið upp á framselja tímabilskort á aðra kennitölu.
3. VANEFNDIR, LOKUN KORTA
Ef korthafi gerist brotlegur við notendareglur samkvæmt skilmálum þessum hefur
Fjallabyggð heimild til að afturkalla og loka korti fyrirvaralaust.
4. GREIÐSLUVANDAMÁL
Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við
okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.
5. MISNOTKUN Á KORTUM
Verði einstaklingur uppvís að því að framvísa/nota tímabilakort sem skráð er á
annan einstakling hefur Skaftárhreppur heimild til þess að loka viðkomandi korti.
6. PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr.
77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er í
vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru
eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu
svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar og
einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp pöntun. Við deilum aldrei
persónuupplýsingum með þriðja aðila.